Sirrýlei ætlar að halda gott 15 ára afmælispartý fyrir vini sína. Foreldrar hennar verða í útlöndum og planið er alveg skothelt. En smám saman fara málin að flækjast, meira að segja amma hennar klikkar með því að gefa henni eldgamla nælu í staðinn fyrir flottu úlpuna sem hún óskaði sér. Sirrýlei á erfitt með að halda kúlinu gagnvart vinum sínum þegar saga nælunnar og eigenda hennar, Silfurgengisins, nær tökum á henni. Bestu vinkonur hennar botna ekkert í henni og ekki batnar það þegar Sirrýlei velur nördalegasta áfangann í skólanum og lendir þar í hópi með stórundarlegum krökkum, meðal annars nýja stráknum með skrýtna nafnið og skyrhárið!
Silfurgengið er grípandi unglingasaga sem fjallar um vináttu og óvænt örlög. Brynhildur Þórarinsdóttir er margverðlaunaður höfundur barna- og unglingabóka og hlaut m.a. Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir endursagnir sínar á Íslendingasögunum Njálu, Eglu, og Laxdælu.
Silfurgengið fæst í bókabúðum og á forlagid.is
