Ungfrú fótbolti

Vinkonurnar Gerða og Ninna eru alveg fótboltaóðar. Götuboltaliðið æfir þrotlaust og stelpurnar eru stórhuga, þær vilja keppa á alvöru velli eins og strákarnir. En þá þarf að taka slaginn við samfélag sem hefur mjög skýrar hugmyndir um hvað 13 ára stelpur mega gera.
Ungfrú fótbolti er bráðskemmtileg baráttusaga sem gerist innan um hálfbyggðu húsin í Breiðholtinu 1980, sumarið sem Vigdís Finnbogadóttir skoraði hefðirnar á hólm og bauð sig fram til forseta.
Söguhetjur bókarinnar hlusta á tónlist þessa tíma en lagalistinn er á Spotify.

Ungfrú fótbolti kom út hjá Máli og menningu árið 2019.