Egils saga

Hér er Egils saga endursögð á ný fyrir unglingastig en Menntamálastofnun gaf út 2014. Bókin er í litlu handhægu broti og tilheyrir flokki heimsbókmennta (RR-Real Reads) ásamt t.d. Rómeó og Júlíu, Drakúla og Baskerville hundinum. Myndir gerði Halldór Baldórsson.
Egill Skallagrímsson er ein magnaðasta persóna Íslendingasagna. hann er fýlugjarn, fégjarn og nýskur, skapmikill, ósvifinn og eigingjarn víkingur sem vegur mann og annan í útlöndum. En það er þó máttur orðsins sem bjargar lífi stríðshetjunnar þegar mest liggur við. Því hann er skáld gott og þiggur lífgjöf úr hendi konungs fyrir lofkvæði sitt. Egill beygir sig fyrir engum nema elli kerlingu þegar yfir lýkur.
Rafbók Egils sögu má nálgast hér: https://mms.is/namsefni/egils-saga-rafbok
Bókin var þýdd á ensku og gefin út af RR / Real Reads í Bretlandi: http://realreads.co.uk/egils-saga/