Leyndardómur ljónsins

Fjórir krakkar, þau Tommi, Anna, Harri og Valdís, kynnast í skólabúðunum að Reykjum í Hrútafirði. Þar eiga sjöundubekkingar frá Reykjavík og Akureyri að dvelja saman í heila viku en strax á fyrsta degi fara undarlegir atburðir að gerast. Dularfullur skuggi, gamalt veggjakrot, draugasögur og fleira verður til þess að vekja forvitni krakkanna sem leggja ýmislegt á sig til að afhjúpa leyndarmál staðarins. Úti geisar stórhríð og rafmagnsleysi gerir stemninguna í skólabúðunum enn magnaðri.
Leyndardómur ljónsins hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2004. Kiljuútgáfan kom út 2014 en bókin nýtur stöðugra vinsælda meðal sjöundubekkinga í kringum Reykjaferðir. Vaka-Helgafell gaf út.