Smáralindar-móri

Smáralindar-móri eftir Brynhildi Þórarinsdóttur er mergjuð saga fyrir lesendur sem kjósa spennu og dálítinn óhugnað!

Vinirnir Flóki og Patti laumast í skjóli myrkurs inn á lokað byggingarsvæði í Kópavogi, en þar er verið að reisa risastóra verslunarmiðstöð. Skyndilega er Patti horfinn, eins og myrkrið hafi gleypt hann. Eftir þetta kvöld verður ekkert eins og áður.

Ári síðar er Lotta með vinkonum sínum í nýopnaðri Smáralind þegar hún tekur allt í einu á rás og þær týna henni. Hvað varð eiginlega um hana?

Sögur um draugagang í verslunarmiðstöðinni magnast, sumir sjá þar dularfullar verur, strák og stelpu, og þann 10. október á hverju ári, á afmæli Smáralindar, fer eitthvað undarlegt á stjá …

Myndlýsingar í bókinni eru eftir Elías Rúna.